Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Guðlaug Jóna
  • Hjúskaparstaða: í sambúð með verðandi dr. Óla
  • Um mig: ég er þjóðfræðistelpa sem er nýflutt á seltjarnarnesið ásamt kalli og kisu. Einnig er ég í hí kórnum og nýt lífsins í botn!

Auglýsing

Innskráningar kubbur

hmm já.. MJÖg lang síðan

12. nóvember 2008 klukkan 12:55
jæja... það er orðið frekar langt síðan að maður bloggaði hérna.. enda hefur lítið gerst. nema að við erum búin að fá okkur kisu, sem gerðist í sumar, hún heitir Hneta, þrátt fyrir að við köllum hana bara alltaf kisu, það eru myndir af henni á facebook:P

Það er alveg nóg að gera hjá mér, 3 ritgerðir, 2 próf og tvennir tónleikar, sem mun taka enda þann 10 des.! sem verður nice. einn kennarinn minn reyndar frestaði ritgerðinni í hennar kúrs sem átti að skila 1.des til 10.des þannig að ég er mjög sátt við að hún skuli hafa tekið tillit við að dreifa álaginu. þannig að ég ætla að reyna að skira ritgerð nr 1 í þessari viku ásamt 50% hópavinnu sem á að skila í næstu viku, ritgerð 2 verður tekin í næstu viku, þar næst eru byrjað að lesa fyrir bæði prófin og klára síðustu ritgerðina mína sem er sú áhugaverðast af þeim öllum, finnst mér. það verður EKKERT mál að skrifa hana!. það verður alveg örugglega leiðinlegast að skrifa ritgerðina í kvikmyndunum! en allavega þann 24.nóv og 25. nóv mun Háskólakórinn halda tónleikana sína í Neskirkju, veit ekki alveg klukkan hvað en ég mun koma með það fljótlega. VIð ætlum að synga Messiah eftir Handel, mjög flott verk, meðlimir úr sinfó munu spila með okkur og einnig 4 einsöngvarar! Þau eru; Þórunn Marinósdóttir, sópran, Sibylle Köll messósópan/alt, Hlöðver Sigurðsson tenór og Valdimar Hilmarsson, baritónn!
Þeir sem komu á tónleika okkar fyrir ári síðan ættu að kannast  við Sibylle, Hlöðver og VAldimar, því þau voru einnig einsöngvarnir þá.
fyrir þá sem hafa áhuga kostar miðinn 1500 kr í forsölu, endilega hafið þið samband við mig, ef þið viljið miða:D, því miðin mun kosta 2000 kr í dyrunum

en hvað er meira að frétta. já.. ég og óli búum ennþá upp á keilir en við erum að koma aftur í bæinn, leiga þar er búið að hækka það mikið að það er bara alveg jafn gott að búa í bænum.  allavega erum við bundið 3 mánaða uppsagnafrest þannig að við munum koma í bæinn í lok jan. ég er búin að sækja um á stúdentagörðunum og er nr 28 þar, sem er miklu neðar en ég bjóst við. er að vona að fá stærstu íbúðina þar! en allavega.. ég hef ekki meira að segja, ákvað að blogga því að Þórdís var að heimta blogg!! SAKNA þín geðveikt mikiðKiss!!! og jú hey.. ég er LOKSINS búin að losna við teinana!!!! geðveikt happy!! ég set mynd af mér þegar ég tek af mér nógu góða mynd eða að einhver annar geri það

yfir og út

Gulla Grallari ~ sem á að vera að læra en nennir því ekki


já.. segja smá

19. júlí 2008 klukkan 12:12
jæja.. ég sit bara núna uppí vinnu og hef það ágætt.. lítið að gera.. miðað við að ég er í taxfree....( nenni ekki að útskýra) en allavega.. hef það ágætt hérna í keflavík, er í fínni vinnu... er búin að fara á sigló með kórfélugum sem er alltaf æðislegt... Póllandsferðin var æðisleg líka!!! en hérna.. ég er að spá að taka mér sumarleyfi frá blogginu nún, enda er ég FREKAR löt að skrifa núna


þannig að ég skrifa bara aftur í haust eða í vetur...

Kveðja

Gulla

Mánaðarbloggið

14. maí 2008 klukkan 21:32
ég held að það sé frekar góð hugmynd að gerast mánaðarbloggari.. þá hefur maður kannski eitthvað að segja... en allavega... háskólakórinn er búin að halda tónleikanan sína og þeir urðu bara alltí lagi:P altin var auðvitað best.. þarf að segja eitthvað annað. en allavega.. maí mánuður er búin að einkennast af próflestri, búin að hanga mikið í gimli, þrátt fyrir að maður sé að læra þá tekur facebook alveg ótrúlegan mikinn tíma frá manni. maður gat stundum gleymt sér þar inni. sérstaklega þegar maður er að hlusta á fyrirlestrana aftur ti að glósa betur og eftir klukkutíma hlustun á þá, það var vel þegið að taka sér pásu á þettan hátt, en allavega, ég er að vona að ná prófinu í norrænni trú, veit ekki alveg hvernig mér gekk þar, er bara vona að ég nái, annars þarf ég að taka sumarpróf, ég náði lúsakömpunum og er mjög sátt við það. Í dag tók ég síðasta prófið mitt, efnismenningog mér gekk bara fínt, nema kannsi síðasta spurningin var dáldið opin, eiginlega of opim, en ég fór austur í sveitina áður en prófið byrjuðu og ætlaði að hjálpa til í sauðburðinn en nei, þær ákvaðu að taka sér hlé meðan að ég var heima þannig að ég var bara að slappa af, svona næstun því. en ég hlakka svo til á sunnudaginn!!!!! ARG.. kórinn er að fara út til BErlínar og þaðan til Póllands!! get ekki beðið... bara 4 dagar í viðbót!!! Ég ætla svo að skemmta mér og hafa það nice!! en það eina sem ég er kvíðin fyrir er þegar að ég mun byrja í nýju vinnunni minni kl 10 um morgunin þann 29 maí, ég lendi samkvæmt áætlunum kl:00:45 þann 28. maí og maður býst alltaf við einhverri seinkun þannig að líklega verður lent aðfaranótt 29 maí, það bara kemur sér að ég bý nálægt vinnunni, ég ætla að segja þetta gott núna.

Kveðja
Gulla

P.S sem er komin með fráhvarfseinkenni!

Maður er latur að blogga

15. apríl 2008 klukkan 15:00
já. ætli maður verði ekki að fara að blogga þar sem edda kom með bloggUllandi en það er FREKAR langt síðan að ég bloggaði... ég hef bara ekki nennt því og eiginlega engu öðru... það þarf virkilega að taka til og ég ætla að taka til að morgun. maður verður svo lengi í skólanum í dag.. sérstaklega þegar maður er líka að fara á óperu í kvöld.. reyndar nemasýningu.. en hvað með það.. ég hlakkar til og held að það verði mjög gaman.. sérstaklega þar sem við erum 4 að fara saman og sitjum í þannig sæti að það eru aðeins 4 sæti saman.. það verður æðislegt... en já.. hvað er búið að gerast síðan síðast..

  • árshátíð kórsins  og það var SVO gaman
  • djamm með stelpunum...
  • læra
  • aftur djamm
  • vísindaferð
  • aðalfundur þjóðfræðarinnar
    • það var flautað 2x á mig þar sem ég var að ganga leið mína þangað
  • og svo aftur að læra
  • skila tímaritsgrein hálfpartinn
    • verkefni í skólanum
    • held því fram að ég hafi skrifað BESTA inngang sem ég hef skrifað
en það er bara vika eftir af skólanum og 3 vikur í próf en samt á margt eftir að gerast..

  • Heimapróf
    • þarf að klára sem fyrst
  • skrifa ritgerð
    • hata þær, sérstaklega að byrja
  • tónleikar hjá kórnum
    • 27.apríl. 2008. kl 17:00 í neskirkju
      • áhugasamir hafa samband við migGlottandi
  • skil á ritgerðinni daginn eftir
    • svaka stuð eða þannig
  • Tannréttlingarlæknir
    • það fer að koma tvö ár síðan að ég fékk teina
    • er að gefa mér vonir um að ég losni við teinana í sumarHlæjandi
    • minnir mig á að ég þarf að vera duglegri að nota teygjurnarSkömmustulegur
    • svo að vonir mínir geti ræst
  • heim í sveitina í sauðburð og læra fyrir annað prófið
    • sem verður 8. maí
    • lélegt netsamband þannig að ég mun ekki hanga á msn þá
  • svo heim í próf
  • próflokadjamm
  • PÓLLANDSFERÐ
    • HLAKKA GEÐVEIKT MIKIÐ TIL
  • svo heimkoma og frí í nokkra daga áður en ég byrja að vinna á fullu
    • í Landsbankanum í Leifstöð
    • heimta að fólk heilsi uppá mig ef þið eigi leið þarna um ef ég er að vinna
svona er planið hjá mér næstu mánuðinn. svaka stuð... en ég ætla að reyna að læra eitthvað núna.. vera einu sinni dugleg þrátt fyrir kuldann hérna á Háskólatorgi

Kveðja

Gulla

hvað er...

12. mars 2008 klukkan 10:31
búið að gerast síðan síðast.. skóli, kóræfingar, finna sal fyrir árshátíð kórsins sem við enduðum að fresta um tvær vikur til að fá MIKLU betri sal og til að halda hefðinni að hafa hana utanbæjar. en ég mun ekki segja hvar hún er. þeir sem eru að suða fá ekki að vita neitt.. þið vitið vel hverjir þið eruUllandi en já.. svo á föstudaginn síðasta var árshátíð verkfræðinema hjá óla og ég fór með. það var mjög gaman en ég nenni ekki að segja mikið frá henni læt hérna 3 myndir til að sýna ykkur

 Skötuhjúin
 já.. óla leiddist biðin eftir desertinum

 það var svona gaman
 
en svo var stelpukvöld á laugardaginn.. það var svo gaman en ég ætla að láta myndir

 þessi flaska sló í gegn

og svo var ein mynd úr miðbænum þar sem mikið var dansað þangað til að maður fór heim kl 4

 Ég, Edda og Sandra

en nú kveð ég.. best að fara fylgjast með í tíma og svo er fyrirlestur á morgun úr bókinn making sex, body and gender from greek to freud.. ekki eins spennandi og hún hljómar

Gulla

úff...

02. mars 2008 klukkan 23:14
já.. ég er búin með greiningarverkefni og hafði lúmskt gaman af því.. en um helgina var þemapartý kórsins og það var rosalega gaman


 Skreytingarnefndin.. vantar söndru þar sem hún tók myndina:P
   Sandra og ég, já sandra mín mjög spes svipurUllandi

 og ég.. vantar Heildarmyndina en ég var í bleikum sokkabuxum

enda var þemað bleikt og blátt.. sem sagt litirnir en ekki blaðið... en ég var að lesa mbl.is og hvað sá ég þar í helst í fréttum

Snælduvitlaust veður undir Eyjafjöllum

Vonskuveður er í kringum Vík í Mýrdal. Lögreglan á Hvolsvelli var að setja upp vegartálma við Ásólfsskála undir Eyjafjöllum þar sem margir ökumenn hafa ekki tekið mark á viðvörunum um að Suðurlandsvegur væri lokaður og ekið af stað út í kófið. Er fjöldi bifreiða fastur á Sólheimasandi og eru björgunarsveitir og lögregla að bjarga fólki úr bílunum og koma því í skjól.

já...fyrir þá sem vita það ekki þá er ég uppalinn eyfellingur og Ásólfsskáli er svona ca 5 mín frá sveitabænum mínum eða ekki minna... já.. alltaf gaman að vera undan fjöllunum.. maður er vanur öllum veðrum sérstaklega roki.. enda þetta rokrassgat dauðans.. þrátt fer Keflavík að nálgast þann titil líka.. man fyrir 2-3 árum síðar þegar þakið á litla fjárhúsinu okkar fauk af í einu lagi...svona er þetta rok þar... enda er maður ekki hræddur þegar kemur að þurfa að keyra í miklu roki og snjó....  en ég man ekki eftir því að vegurinn hafi verið lokaður frá Ásólfsskála til vík.. yfirleitt er það bara mýrdalssandurinn sem er lokaður en svona er þetta.. ég segi þetta gott í bili en kem með heildarmynd af mér þegar hún kemur eða ef hún er til

Gulla

Það sem er búið að vera að bögga mig þessa vikuna

28. febrúar 2008 klukkan 13:31
já...hvað er búið að vera á mínu heimili undanfarið.. kvef, hálsbólga, hósti og hausverkur og það virðist ekki vera að fara!! er búin að vera með þetta síðan á sunnudaginn og ég er að klikkast!!! ég á að skila verkefni á mánudaginn og er varla byrjuð!!!!! og svo er partý á laugardaginn!! alveg nóg hjá mér að gera en ég er ekki búin að gera neitt út af þessari blessuðu pest!!! er ekki alveg sátt við að fá hana núna!! það eina sem ég er búin að vera að gera er að drekka svala, þá helst jarðaberjasvala sem virðist vera æði mitt núna, borða kex,  eina sem ég hef lyst á. og svo sofa helst allan daginn. þannig er sólarhringurinn hjá mér þessa dagana. þegar ég þyrfti að gera annað. en ég vona að ég verði góð á morgun ef ekki þá á laugardaginn þar sem dagurinn í dag fer allavega ekki í að læra þar sem ég er búin að að reyna og ég horfi á tölvuna og skrifa ekki neitt. Hann fer frekar í það að reyna að sofa. það virðist vera það eina sem virkar á þig, því  ég er fín á morgnanna en eftir svona 2 tíma eftir að ég er vöknuð þá fer allt til fjandans aftur. en ég er farin núna. langaði að kvarta aðeins

kveðja

Gulla veika

hvað er...

22. febrúar 2008 klukkan 12:43
það sem er búið að gerast síðan síðastUllandi

  • búin að koma mér betur fyrir í íbúðinni
  • hang a í skólanum að reyna að læra
  • ÆÐISLEGAR ÆFINGARBÚÐIR!!!!
  • Fá sumarvinnu
    • Landsbankinn í Leifstöð
  • búin að vera löt
  • búin að vera dugleg að elda
  • og einnig baka
Það sem á eftir að gerast á næstunni

  • Missa af útskrift og djammiGráta
  • en í staðin að fara austur heim til mömmu og fara á þorrablót þar
  • lestrafrí
    • vera duglega að læra!!
  • reyna að vera meira duglega að blogga
  • kannski bjóða einhverjum heppnum í kaffi
  • byrja á ritgerð
já.. þetta er það sem er í gangi hjá mér núna  en ég hef ekki meira að segja

Gulla

jæja,... næstum því mánuður síðan síðast

11. febrúar 2008 klukkan 12:06

já.. það er næstum því komin mánuður síðan að ég bloggaði síðast... en síðan síðast höfum við óli komið okkur mjög vel fyrir í keflavík og það er geðveikt að búa þar fyrir utan að vera 2 sinnum veðurteppt en þetta er fínt.. búin að fara nokkrar ferðir í ikea og rúmfatalagerinn til að versla inn fyrir íbúðina.. og svo eigum við eftir að velja málverk frá föður ömmu og afa hans óla en amma hans málar mjög flott málverk.. erum búin að gera eina tilraun til þess en lentum þá í bókasafninu þeirra þar sem ég fann íslenzka þjóðhætti eftir Jónas Jónasson, sem ég þarf í einum áfanganum sem ég er í og það er hætt að selja hana þannig að ég er mjög ánægð.. einnig fann ég bók eftir Ólaf Briem, Heiðnir siðir sem var mælt með að lesa í norrænu trúnni, fyrsta skiptið sem ég sé hana. og að lokum fann ég mér sjálfsævisögu til að lesa... og þegar við vorum búin að fara í gegnum þeirra mikla bókasafn þá ákvaðum við að fara aftur í heimsókn til þeirra að velja málverk því þau voru orðin dáldið þreytt. en já...um helgina var geðveikt mikið stuð!!! fórum úr bænum í geðveiku miklu roki sem annars var eiginlega í bænum fór kórinn í æfingarbúðir í Skálholti og það var bara æðislegt. sérstaklega var laugarskvöldið geðveikt.. busað, leikir og góður matur og auðvitað drukkið til kl hálf fimm um morguninn, og þá farið að sofa vegna þess að ég og óli þurftum að vakna kl 9 til að fara í bæinn því mamma hans var að halda uppá afmæli sitt í hádeginu... við komum svo heim kl 4 og ég lagði mig í tvo tíma og fór upp í rúm kl 10 og svo nenni ekki að vakna kl 7 í morgun þannig að ég svaf í klukkutíma í viðbót sem varð til þess að ég missti af einum tíma, en ég er ennþá að deyja úr þreytu en kaffibolli hjálpaði mjög mikið til!!!

en jæja.. ég er ekki með neinar myndir þar sem ég gleymdi myndavélinni minni en ég er farin að fylgjast með í tímanum

Kv.

Gulla

nýja íbúðin

12. janúar 2008 klukkan 20:36
já.. núna er ég loksins flutt í nýju íbúðina. Við fluttum í gær og fengum vini og vandamenn til að hjálpa okkur að flytja. það tókst allt saman mjög vel nema kannski helst rúmbotninn.. eins gott að við keyptum ekki stærri!!!! annars hefði hann verið fastur í stiganum núnaHlæjandi en já.. við vorum til kl 11 í gær að skrúfa saman allt dótið saman sem þurfti að skrúfa en þar sem óli gat það ekki þá voru vinir hans að  skrúfa saman hillur og skrifborð.. ( aðal vesenið var víst skrifborðið mittUllandi)  en já.. við kláruðum að taka stofuna og eldhúsið í dag.. þannig að hún er æðislega fín núna.. óla vantar bara eitt skrifborð fyrir PC tölvuna sína. en já.. en svo er vinnuherbergið og svefnherbergið eftir.. er ekki alveg að nenna að taka upp fötin mín og setja inní skápinn.. finnst svo leiðinlegt að taka uppúr töskum.  Mamma var reyndar æðisleg í gær. fór með henni í elko og ég ætlaði að kaupa okkur ryksugur, þar sem teppi er í mest allri íbúðinni, og þegar ég ætlaði að borga þá sagði mamma ætla að borga hana. Þetta væri innflutningsgjöfin frá henni. ég á æðislega foreldraGlottandi en já. ég kem með myndir um leið og ég er búin að taka alveg til og einnig búin að finna snúruna úr myndavélinni í tölvuna. en ég kveð núna

Gulla

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan