Það sem er búið að vera að bögga mig þessa vikuna
28. febrúar 2008 klukkan 13:31
já...hvað er búið að vera á mínu heimili undanfarið.. kvef, hálsbólga, hósti og hausverkur og það virðist ekki vera að fara!! er búin að vera með þetta síðan á sunnudaginn og ég er að klikkast!!! ég á að skila verkefni á mánudaginn og er varla byrjuð!!!!! og svo er partý á laugardaginn!! alveg nóg hjá mér að gera en ég er ekki búin að gera neitt út af þessari blessuðu pest!!! er ekki alveg sátt við að fá hana núna!! það eina sem ég er búin að vera að gera er að drekka svala, þá helst jarðaberjasvala sem virðist vera æði mitt núna, borða kex, eina sem ég hef lyst á. og svo sofa helst allan daginn. þannig er sólarhringurinn hjá mér þessa dagana. þegar ég þyrfti að gera annað. en ég vona að ég verði góð á morgun ef ekki þá á laugardaginn þar sem dagurinn í dag fer allavega ekki í að læra þar sem ég er búin að að reyna og ég horfi á tölvuna og skrifa ekki neitt. Hann fer frekar í það að reyna að sofa. það virðist vera það eina sem virkar á þig, því ég er fín á morgnanna en eftir svona 2 tíma eftir að ég er vöknuð þá fer allt til fjandans aftur. en ég er farin núna. langaði að kvarta aðeins
kveðja
Gulla veika
kveðja
Gulla veika
