já.. blogg:P

en já.. ég nenni ekki að blogga meira núna.. er að fara í bíó á eftir.. er að bíða eftir óla sem er by the way er búin að vinna öll kvöld sem ég er búin að vera í bænum til miðnættis!! ekki gaman fyrir mig.... en hef notið tímann til að taka aðeins til í íbúðinnií eskihlíðinni. en já.. ég óska öllum gleðilegt nýtt árs og takk fyrir það liðna á árinu sem er að líða
Gulla
lćra eđa blogga?
. Óli á huge skrifborð sem hann fékk í gjöf frá foreldrum.. hann heppinn... en ég er búin að komast af því að við eigum geðveikt góða foreldra.... ég var að tala við pabba að við þyrftum nýtt rúm og hvað dýnur væru dýrar.. þá sagði pabbi að hann ætlaði að gefa okkur það í innflutningsgjöf og ég var bara ok.. alltí lagi.. þannig að ég hringdi í óla og sagði honum þessar gleðifréttir... en þá sagði óli mér að mamma hans ætlaði að gefa okkur rúm í jólagjöf... þannig að ég talaði við pabba aftur og sagði honum þetta, en hann mætti gefa mér skrifborð í staðinn en hann sagði að hann ætlaði að gefa okkur bara þá upphæð sem rúmið kostaði ( sem ég var búin að finna) í peningum til að hjálpa okkur að versla inn.. þar á meðal skrifborð handa mér og líklega fer þessi peningur í borðstóla og fleira. Þannig að ég er mjög ánægð með það. en annars sækjum við lyklana snemma 4. jan þar sem óli verður líklega að vinna á kvöldvakt þettan dag. hann fer í vinnuna kl 16 þannig að það verður að veera búin að flytja flest eða allt saman og setja saman rúmið... sem hann heimtar að gera.. og reyndar að setja saman allt sem þarf að setja saman..hann segir að það sé karlmannsverk. en annars hlakka mig til þegar prófin verða búin.. slappa af í sveitinni... en ég ætla að fara aftur að lesa... mér veitir ekkert af því..Kveðja
Gulla
Keflavík.. Here I come
já.. það eru fréttir af mér...
ég og óli erum að fara að búa saman í keflavík.. hann fékk jákvætt svar um íbúð.. þannig að við erum að fara að flytja í 107 fm 3 herbergja íbúð sem by the way kostar 53 þúsund á mánuði.. erum að fara að skrifa undir á morgun!!! og við fáum hana 4 janúar.. hálfu ári fyrr en það sem við sóttum um. en við ætlum að taka ef svo skyldi að við myndum ekki fá aðra íbúð í júní. við erum þá allavega komin með íbúð!!! en endilega komiðið í heimsókn þegar þið eruð í keflavík eða nærri.. Ég hlakka geðveikt til.. þannig að jólagjafalistann er einning komin búáhöld og fleira í nýju íbúðina
nema það versta yrði að ég og hugrún þyrftum að skipta á milli okkar DVD myndunum okkar... það verður sko rifist um þær og svo er prentarinn...það er spurning hvar hann verður.. en það ræðst síðar..
Kveðja
Gulla sem er að fara að búa!!
P.S. dáldið skrýtið að hugsa um það!!!
aha.. Afmćlisbarn:P
á víst að fá fleiri gjafir frá litlu sys, eldri systur minni og svo má ekki gleyma sillu frænku. en það verður þegar ég kem heim. sem dáldið þangað til. en já. tónleikarnir gengu mjög vel hjá okkur. Allir mjög ánægðir. Allavega voru allir ánægðir með þá. þannig er nú það.. í raun og veru á ég að vera að læra. á að skila ritgerð á morgun sem ég er ekki að nenna núna.. en ég á ekki lítið eftir. Það virðist vera miklu skemmtilegra að taka til en læra... en já.. ætli maður fari nú ekki aftur að læra. Taka mig á. og fara svo á kóræfingu á eftir. Já einn enn.. Óli sótti um stúdentaíbúðir í Keflavík og fékk umsókninga samþykkta. við báðum að fá hana 1. júní. Hann er nr 39 á listanum þannig að maður er bjartsýnn:D Hann eða semsagt við sóttum um 3 herbergja íbúð sem er 95 fm á 50 þúsund sem er bara æðislegt þannig að maður hlakkar til!!! en ég er farin að læraKveðja
Gulla Afmælisbarn
Tónleikar!!!

Þann 25. og 27. nóvember munu Háskólakórinn og Ungfónían flytja Messu í C eftir Beethoven í Langholtskirkju kl 20:00. Einnig mun Ungfónían, öðru nafni Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, leika Hersinfóníu eftir Jósef Haydn.
Einsöngvarar:
Rannveig Káradóttir, sópran
Sybille Köll, alt
Hlöðver Sigurðsson, tenór
Valdimar Hilmarsson, bassi
Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson
hægt er að fá miða hjá mér. Miðinn kostar 1000 kr en 500 kr fyrir námsmenn, eldri borgara og börn í forsölu. við inngang kostar miðinn 1500 kr en 1000 fyrir námsmenn, eldri borgara og börn.
hmm já.. FREKAR langt síđan
ekki nógu gott.. ég hef bara ekki haft tíma né efni til að skrifa um eitthvað merkilegt. en ég ætla að blogga núna. síðan að ég bloggaði síðast hefur ekkert mikið gerst.. en ég er búin að venjast teygjunum og ég sé orðin mun á tönnunum á mér.. get ekki ýtt tungunni eins mikið út á milli tanna þegar ég bít og þetta er bara ágætt.. verð samt fegin þegar þetta er búið og ég verð komin með beinar tennur
en já.. annars er ég búin að vera að læra og læra... þarf að skila ritgerð 30. nóv... 10 bls.. þarf virkilega að hrista upp úr ermunum. Fer svo í 2 próf... þann 12. og 18. des... dáldið langt þangað til en ég ætla svo að læra til að ná prófunum svo að ég fái námslánin.. og svo voru æfingarbúðir í þykkvabænum um helgina hjá kórnum!!!! það var svo gaman!!!! busuðum og sungum verkið í gegn!!! eigum reyndar að syngja það utan bókar.. 95 bls.. en ég held að ég geti það... horfi lítið oní bókina núna... og svo var auðvitað drukkið og farið í leiki... það var svo gaman og kynnast líka betur nýja fólkinu sem eru í kórnum. Ég er mjög ángæð með heildina í þessum kór... og stjórnandann líka.. ég er mjög sátt við hann. En já.. það eru tónleikar hjá kórnum 25.nóv og 27.nóv. í Langholtskirkju... veit ekki alveg klukkan hvað en ég mun auglýsa það þegar ég veit það.. að öðru máli.. ég á afmæli eftir aðeins 17 daga og verð þá 22.... ég er að verða gömul sei mér þá... alveg hrikalegt.. en ég veit ekki hvað ég á að gera... halda partý eða hafa það rólegt... koma með hugmyndir
.... Mamma er að koma í bæinn á eftir.. hlakkar hálfpartin til... langt síðan að ég hef séð hana.. hún ferð samt heim á morgun og um helgina verð ég að passa litlu frændsystkinin mín.. þau eru svo mikkið krútt....Mig langar í nýjan jólakjól.. er að spá að biðja foreldra mína að gefa mér kjól í afmælisgjöf... mig langar í þessa t.d

en núna ætla ég að hætta því ég er að baka haframjölstertu.. nammi namm
kveðja
Gulla
ARG HATA.....
hann herti geðveikt mikið og mér er illt í tönnunum!!!! ég get varla borðað!!!!! Ömurlegt.. ég hata þetta... ég get ekki geispað.... get varlað opnað munninn....er á verkalyfjum núna... ætla samt út í apótek á eftir að kaupa aðrar verkkatöflur sem mamma benti mér á!!! vonandi losna ég við þessar teygjur þegar ég fer næst til hann.. annars verð ég með þær yfir jólin og ég get ekki brosað... óli sagði að ég líti eins og vampíra þegar ég brosi því teygjurnar eru það framalega og sjást því vel þegar ég brosi... þetta er sko hell!! ég vorkenni öllum sem þurfa að vera með þær!! en ég er vonandi meira en hálfnuð með teinana í efri góm.... verð búin að vera með þær í 1 1/2 ár í nóv... losna við þær vonandi í maí... það er strax skárra.... og þá vonandi bara hálft ár í viðbót með neðri.. þetta er að verða búið en já... að öðru málum.. ég er búin að kvarta núna.... ég ætla að láta afmælis-jólagjafalistann minn hér til hliðar undir flokkinn ýmislegt en bæti alltaf við hér í blogginu... en kem ekki með allt.. annars verður bloggið svo langt!!!! þetta er svko miklu betra
en já... það sem er búið að bætast við- Skartgripir
- snyrtidót
- Ilmvatn
- bækur
- hárblásari
en ég kveð núna...Gulla Grallari
já.. ţađ er orđiđ langt síđan:S
já.. það er orðið frekar langt síðan að ég bloggaði... kannski er ástæðan líklega sú að ég er búin að vera að kafna úr verkefnum og svo hef haft lítið að segja... en já.. ég er loksins búin með eina ritgerð, reyndar stutta, fyrirlestur og svo skýrslu bara í þessari viku!!!! ég er búin að vera það dugleg... en ég er líka búin að fara í suðunesjaferð með þjóðfræðinni sem var í síðustu viku.. raddar partý sem var algjört stuð!!!! mjög gaman nema þegar ég þurfti að fara heim því ég þurfti að skirfa ritgerðina.... en já.. núna sit ég í þjóðsagnafræði sem er ekki eins skemmtileg og ég hélt... bjóst við miklu skemmtilegri tíma þar sem ég hef mikinn áhuga á ævintýrum... og bókin sem er ég er að byrja að lesa þar er eftir mann sem aðhylltist freud!!! guð minn góður.. ég á aldrei eftir að geta lesið ævintýri eins og vanalega... en ég er að fara austur á morgun...hlakka eiginlega orðið til að fara heim í matinn hennar mömmur... en ég fór að versla í fær... keypti mér svartar geðveikar buxur... hvítan bol og svo náttkjól... langaði líka geðveikt í lífsstykki sem var geðveikslega flott og svo langar mig í nýtt vesti.... er orðin þreytt á því að nota mitt ekki vegna þess að það er bundið af aftan og losnar í hvert sinn sem eg hreyfi mig... ekki mikið stuð... þannig að ég er búin að ákveða að búa til afmælis+jólagjafalista þar sem það er aðeins 48 dagar þangað til að ég á afmæli
mig langar í
kápu eða jakka
vesti
lífstykki
svart plain pils ( er búin að gera dauðaleit af því)
lágbotna skó
hliðartösku
geisladiskar (eru alltaf vel þegnir)
DVD ( er ekki viss á hvaða myndir mig langar í)
húfu
ég mun endilega bæta á þettan lista þegar nær dregur afmæli og jólum.... gott að byrja núna þar sem ég er yfirleitt hugmyndalaus þegar allir spyrja hvað ég vil í afmælis eða jólagjöf... en ég hef nú eiginlega ekki meira að segja núna þannig að ég kveð
Gulla Grallari
jćja.. halda áfram

leiđinda veđur...

en já.. annað kvöld er ég að fara í afmæli hjá henni Söndru minni sem á afmæli í dag og vil ég óska henni innilega til hamingju með daginn... nú ertu u.þ.b. 2 mánuðir þangað til ég næ í þig og verð einnig gömul... en ´85 árgangurinn er langbestur finnst mér.. við erum svo ótrúlega skemmtileg. en ég er hætt í bili en bendi endilega á tvo myndbönd með vini mínum sem er síðan á þorrablótinu ´07
http://video.tagged.com/?v=1dbQSPaEh
(gaurinn lengst til hægri)
http://video.tagged.com/?v=1dbQSPaDB
( gaurinn í rauða bolnum)
en ég kveð í bili
Gulla Grallari
