Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Guðlaug Jóna
  • Hjúskaparstaða: í sambúð með verðandi dr. Óla
  • Um mig: ég er þjóðfræðistelpa sem er nýflutt á seltjarnarnesið ásamt kalli og kisu. Einnig er ég í hí kórnum og nýt lífsins í botn!

Auglýsing

Innskráningar kubbur

já.. blogga blogga

29. janúar 2007 klukkan 05:07
jájá... maður verður víst að blogga af og til... en já.. það er ekki mikið að gerast hjá mér undanfarið. bra mætt í skólann og svo fór maður heim í sveitina um helgina og hafði það bra fínt þar... en já.. næsta helgi verð ég í bænum... það er aukaæfing hjá kórnum á laugardagsmorgunin og svo eftir hana verður farið í BANDÍ!!! guð hvað ég er farin að dýrka þessa íþrótt!!! hún er svo skemmtileg og sérstaklega með skemmtilegu fólki.. en já.. um kvöldið er svo skemmtinefnd kórsins sem by the way er sú langskemmtilegasta ( ég er í henni skijiði)!! búin að skipuleggja þemapartý og er þemað FLIPPAÐ OG FJÓLUBLÁTT!!! þetta verður bra stuð og ég á eftir að skemmta mér vel!! en já.. svo ætla að setja hérna aðeins sannleikan um migHlæjandi

Bogmaður(22.nóv - 21.des)
Bogmaðurinn er fær um að skapa skínandi stemmingu við hvaða aðstæður sem
er og býr til rómantíska stund án fyrirhafnar með krafti sínum og
hugsjónum.
- Einlægur
- Hreinn og beinn
- Fyrir honum er kynlíf hátíð
- Í kynlífsfélaga sínum leitar hann að félaga og samferðaelskhuga
- Harðbrjósta, tilfinningalaus (ónærgætinn)
- Heiðarlegur og lætur ekki bjóða sér neitt undirferli
- Hann hefur mikla þörf fyrir stöðuga örvun í ástarsambandi
- Hann lætur oft slag standa með ókunnugum og hefur elt margar myndarlegar
manneskjur sem hann er hrifinn af á röndum(gefst ekki upp)
- Sterkt fegurðarskyn hans gerir hann að stórkostlegum félaga í ástarleikjum

þetta er bra sannleikurinn um mig.. en um ykkur hin þá er hann þarna í tenglinum ýmsilegt.. bra snilld

endilega kommnetiði eða skrifið í gestabókina!!

jæja... helgin búin!

23. janúar 2007 klukkan 00:15
já.. nú er helgin búin og ég er komin heim aftur... ég var í æfingarbúðum í Skálholti um helgina og var það alveg svaka stuð!!!! en já.. um helgina var sungið, kynnt okkur fyrir nýju meðlimunum.. farið í leiki og drukkið.. hvað annað... á laugardeginum var sungið líka.. allavega til kl 17 þá var byrjað að drekka, fólki að undirbúa sig fyrir kvöldmat og sumir fóru uppí kirkju og svo kom maturinn lasagna sem bragðaðist mjög vel!! eftir það var farið í að busa nýnemana og var það mikil snilld!! eftir það var bra sungið, dansað mikil tilþrif inní sal, spjalla, drukkið og svo fórum sumir í heita pottin sem kom loksins eftir langa bið!! en við enduðum 11 manns í pottinum og var það mikið stuð en ég myndi nú segja að þeir sem mættu fystir oní pottinn og sátu þar meðan Hrafn og Maggi voru að koma með fötur af heitu vatni og kastandi í okkur snjó sem sátu þarna oní!!!! hafi verið þau allra hörðustu!! en Maggi Andri bjargaði okkur með því að koma með besta freyðivín sem ég hef smakkað!!! það var svo gott... en já.. ælti flestir hafi ekki farið uppúr porrinum um 6 því það voru flestir orðnir svo svangir og svo enduðu nokkrir inní mínu hergbergi og Unnar herbergisfélaga míns í "kjaftapartýi" en ég rak þá út um hálf átta þegar ég og unnur vorum að sofna!!! en ég vaknaði hress um 11:30 og fékk mér að borða og fór svo að hjálpa að taka til og svo var keyrt í bæinn aftur nema ég og bílfélagar mínir ákváðum að fara á selfoss að fá okkur að borða... en já.. svo fór ég að horfa á þettan blessaða landsleika okkar gegn úkraníu.. ekki góður leikur!! ég var í fýlu eftir leikinn ekki sátt!!! en já.. svo var ég bra á netinu og horfa á tv til miðnættis og þá fór ég að sofa.. en ég hef ekkert meira að segja núna.. þannig að ég kveð núna

p.s. hérna eru slóðin inná myndirnar í Skálholti.. njótið þess.. þær eru líka hér fyrir neðan undir myndir
        
          http://community.webshots.com/slideshow/557150809AtaUYr?&track_pagetag=/page/album/goodtimes/friendsfun/&track_action=/Owner/ActionsBox/Slideshow

skólin byrjaður!

16. janúar 2007 klukkan 17:43
jæja... nú er skólinn loksins byrjaður!! samt átti maður dáldið erfitt að vakna í morgun!!! vá!! ekki að að nenna að vakna í morgun.. en náði að vakna og fara í sturtu!! þá vaknaðu ég svona lala.. en já.. á sunnudeginum ákvað ég að fara í heimsókn til hennar Elínar og gisti hjá henni á eyrabakka og VÁ hvað það var mikill snjór!!! ég var alveg undrandi á þvi.. einnig kíkti ég í heimsókn til Lólu og Jóhannes og fá fékk ég  þá athugasemd að ég væri orðin horuð!!! er ég orðin horuð!!!??? mér langar að fá svar við því!! því mér finnst ég bra fín sko!!! en já... ég fór svo í skólann á mánudaginn að kíkja á gamla félagann og svo á kórfæfingu!!! vá hvað það var gaman!! það var svo gaman að hitta Ósk, Elínu, Sóley Lindu, Gunna, Halla og ég get haldið áfram að telja.. það var svo gaman að hitta þau!!! vá.. ég get eiginlega ekki lýst því hvernig mér leið.. en asninn ég týndi veskinu mínu en það fannst aftur!! guð hvað ég varð feginn!!! en já.. það er líka kóræfing á eftir og hlakka alltaf jafntil æfingarinnar... og svo eru æfingarbúðir í skálholti... Sóley.. ég kíki kannski í heimsóknGlottandi hehe... en já... ég er kannski líka að fá  netið heim til mín í kvöld!!! ég hlakka svo til!!!! ARG!!! NET!!! vá.... ég á eftir að fríka út!!!! hehe.. en já... ég hef eiginlega ekki meira að segja núna.. blogga seinna.... kveð núna
 
Gulla GrallariUllandi

jebb... skólinn fer að byrja...

14. janúar 2007 klukkan 00:40
jæja... ætli maður verði ekki að blogga... en já.. skólinn byrjar hjá mér á þriðjudaginn en ég var nú að spá að kíkja aðeins á selfoss á kóræfingu á mánudaginn.... væri alveg til að hitta allt fólkið sem maður þekki þarna!!! hef ekki hitt þau í dáldinn tíma...en já... kóræfingar eru byrjaðar og það eru 10 nýjir meðlimir í kórnum sem bra nokkuð gott myndi ég segja=P... og það er svo gaman að byrja aftur að syngja þótt sóparanir séu að syngja lengst upp í rassgati!!!! eða upp á A uppi.. en já.... í gær var sópranakvöld og það var svo gaman.. við vorum svo að fíla okkur í Aconary!!! það var svo gaman... maður var orðin frekar æstur þarna og maður þurfti að öskra dáldið hátt til að vinna!!! en ég og sigrún hefðum getað unnið hefði ég ekki verið dáldið mikil  ljóska!!!!!Gráta en þetta var bra gaman og við þurfum að gera þetta aftur sem fyrst!!! en já.. ég hef eiginlega ekki meira að segja þannig að ég kveð núna...

Gulla Grallari 

jæja nýtt blogg loksins

09. janúar 2007 klukkan 19:45

góðan daginn.... ætli það sé ekki komin til að gera nýtt blogg!!! maður er orðin dáldið latur við að gera þessi blogg.. en já.. í dag kl 17 er svo fyrsta kóræfingin!!! vá hvað mig hlakkar til!!! það er ekki eðlilegt!!!! vá.. ég er að deyja!! en já.. núna er ég bra í bænum að gera eiginlega ekki neitt.. því skólinn byrjar ekki hjá mér fyrr en þann 15 þannig að það er bra það.. en ég fór á Brodway á laugardaginn og það var mikið stuð að ég og vinkonur mínar löppuðum út eftir 1 og hálfan tíma!!! það var það mikið fjör en við enduðum bra í heimahúsi og það var ágæt og snillingurinn ég fór að sofa kl hálfníu á sunnudagsmorguninn!!!! en það er bra flott sko.... hehe.. en núna er eiginlega orðin fastagestur heima hjá Jóhönnu... það er eiginlega eini staðurinn sem ég get farið eitthvert því enginn býður mér í heimsókn!!!!Gráta en já.... þannig að þessa vikuna ælta ég bra að slappa af og venja mig við að vakna snemma og svona.. en sem betur fer þarf ég ekki að fara í skólann á mánudögum en ætli það verðir ekki líklega dagurinn sem fer í þrif og þvotta og læra.... en já... ég hef eiginlega ekki meira að segja þannig að ég kveð núna...

Gulla

P.S ef eitthver veit um síðu þar sem notaðar háskóla bækur fást þá endilega kommentiði og segiði mér það!! ég er ekki alveg að tíma að kaupa 2 bækur á 10.000 kall!!!!!!!

Gleðilegt nýtt ár öllsömul!!

01. janúar 2007 klukkan 23:29
gleðilegt nýtt ár öllsömul!! nú er nýtt ár gengið í garð og það hljómar bra vel!!! en já .. ég var á Selfossi hjá bróður mínum og svo fór ég á áramótaballið með Guðrúnu Maríu vinkonu og hún var dáldið full!!!! hehe... bra stuð sko!!! hitti alveg fullt af fólki...var edrú samt því litla sys þurfti að komast heim sko!! en já.. það gerðist ýmislegt á þessu balli sem ég ætla nú ekki að segja frá hér en já.. ég er eiginlega ekkert búin að gera um jólin og hlakka dáldið mikið til að koma í bæinn aftur og hitta vinina aftur!!!  VÁ!!! ég held að sumir fái kannski öggu pínulítið nóg af mér=P ég á sko eftir að fríka út miðað við það að ég var að dansa upp á borði EDRÚ á áramótaballinu!!! hehe.... en já... ég kem í bæinn þann 2 jan... og gisti kannski í bænum til 4 jan.......  sé til... en þá ætla ég og hugrún litla sys á Eragon og sjá hvernig hún er... en já... ég byrja aftur í skólanum þann 15 en kóræfingar byrja 9 þannig að ég verð í bænum annaðhvort 6-8 jan í bæinn aftur.. fer eftir því hvort ég ætla að djamma eða ekki=P en já.. ég hef eiginlega ekki meira að segja þannig að ég segi þetta gott núna...

ég kveð
 Gulla Grallari=P í feikna stuði

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan